laugardagur, janúar 14, 2006

Á leið á djammið

Sydney er frábær borg, eða allavega það sem við erum búin að sjá af henni. Sem að er reyndar ekki mikið, við erum búin að vera á röltinu í allan dag í kringum Darling Harbour sem að er snilldarstaður. Beggja vegna við höfnina eru veitingastaðir og barir og fullt, fullt af fólki og söfnum og bátum sem að fara með mann í alls konar ferðir og ég veit ekki hvað og hvað.
Við komum bara rétt heim til að skipta út stuttbuxunum (reyndar vill Gulli ekki fara úr sínum vegna svitavandamáls) og ermalausa bolnum og svo ætlum við að skoða nokkra bari og mögulega einn veitingastað.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég vill meira af myndum!

Danni...

Nafnlaus sagði...

Sammála síðasta ræðumanni.

Nafnlaus sagði...

Nákvæmlega!!! myndir og aftur myndir,,, Ég vill kengúrumyndir...

Kv
Gunni

Nafnlaus sagði...

hæ hó og gleðilegt ár elskurnar mínar.
Hvenær fariði svo til Nýja Sjálands ?

kv.

Ófeigur