föstudagur, janúar 26, 2007

Helgin 19. - 21. janúar 2007


Við fórum upp í sumarbústað síðustu helgi til að fagna fertugsafmælinu hans Sindra bróður. Ég var með kvef og skít alla helgina en þessi mynd náðist þegar ég laumaðist út á laugardeginum. Sigrún Maggí og Erla Salóme eru að hjálpa mér að passa hundana sem að var mikið sport. Gulli sást varla öðruvísi en úti með hundana og allir voru kátir.

mánudagur, janúar 22, 2007

föstudagur, janúar 12, 2007

Ég á afmæli ...

... í dag,
ég á afmæli í dag.
Hún á afmæli hún Erna Mjöll,
hún á afmæli í dag.
Veiiii.

fimmtudagur, janúar 11, 2007

Móri og bróðir hans

Móri og bróðir hans komu til okkar í gærkvöldi, bróðirinn verður hjá okkur í óákveðinn tima og hefur ekki enn fengið nafn.

Einhverjar hugmyndir?