![]() |
laugardagur, febrúar 11, 2006
Páskaeyja
Þetta er nú ekki stór eyja, ekki nema 166 ferkílómetrar og um 3700 íbúar sem líklega vinna flestir í kringum ferðamannaiðnaðinn. Líklega einn afskektasti staður í heimi, það eru 3700 km til Suður Ameríku og 4050 km til Tahiti. En hér er margt að skoða og við erum núna búin að skoða suðurhluta eyjunnar og aðeins bæinn.
Gulli og Diego
föstudagur, febrúar 10, 2006
Nýja Sjáland kvatt
Sunnudagurinn fór svo í ferðalag norður til Auckland þar sem að við tókum flugvél til Tahiti. Á leiðinni norður fórum við að velta fyrir okkur daglínunni og hvernig það allt saman virkaði. Eitthvað hafa fyrri útreikningar klikkað því að eftir smá vangaveltur og flugvélamiðaskoðun komumst við að því að í staðinn fyrir 5 tíma stopp á Tahiti þá áttum við að vera þar í 29 tíma.
Ströndin
Vá hvað við erum búin að hafa það gott. Seinnipart fimmtudag keyrðum við niður á strönd með viðkomu í völundarhúsi þar sem að við hlupum um og villtumst í 20 til 40 mínúntur, það voru ekki allir jafn fljótir og sumir villtust meira en aðrir. Á föstudeginum fórum við út á sjó um morguninn og svo á ströndina seinnipartinn. Um kvöldið fórum við niður á strönd til að veiða og náðum 9 fiskum á ótrúlega nettri græju. Ótrúlega gaman að leika sér í sjónum sem að var bæði hreinn og hlýr. Á laugardeginum fórum við í gönguferð og aftur á ströndina og þá dýfði Gulli sér útí sjó og svo seinnipartinn fórum við á seglbretti á hjólum, en það var ekki alveg nógu mikill vindur fyrir alla. Áfram héldu Bjarni og Jackie að dekra við okkur og elduðu góðan mat og létu vel að okkur.
þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Meira seinna
Hrikalega lélegt netsamband, gefumst upp núna en setjum fleiri myndir og texta inn seinna. Erum komin til Páskaeyju.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
















