laugardagur, febrúar 11, 2006

Úff bratt niður



Þeir bjuggu í svona steinhúsum



Syðsti gígurinn



Páskaeyja

Þetta er nú ekki stór eyja, ekki nema 166 ferkílómetrar og um 3700 íbúar sem líklega vinna flestir í kringum ferðamannaiðnaðinn. Líklega einn afskektasti staður í heimi, það eru 3700 km til Suður Ameríku og 4050 km til Tahiti. En hér er margt að skoða og við erum núna búin að skoða suðurhluta eyjunnar og aðeins bæinn.

Gulli og Diego


Við vorum eitthvað löt við að fara út í vél og vorum svo til síðust í röðinni, þegar Gulli tekur eftir að einhver naggur kemur í röðina á eftir okkur. Hvað haldiði hendi Guðs tók utan um stóra manninn og myndataka var leyfð.

Svartur sandur og hlýr sjór



föstudagur, febrúar 10, 2006

Meira seinna

Gefumst upp i bili setjum meira tegar vid komum til Chile (a morgun)

Foss á Tahiti

Tahiti


Nýja Sjáland kvatt

Sunnudagurinn fór svo í ferðalag norður til Auckland þar sem að við tókum flugvél til Tahiti. Á leiðinni norður fórum við að velta fyrir okkur daglínunni og hvernig það allt saman virkaði. Eitthvað hafa fyrri útreikningar klikkað því að eftir smá vangaveltur og flugvélamiðaskoðun komumst við að því að í staðinn fyrir 5 tíma stopp á Tahiti þá áttum við að vera þar í 29 tíma.

Ströndin

Vá hvað við erum búin að hafa það gott. Seinnipart fimmtudag keyrðum við niður á strönd með viðkomu í völundarhúsi þar sem að við hlupum um og villtumst í 20 til 40 mínúntur, það voru ekki allir jafn fljótir og sumir villtust meira en aðrir. Á föstudeginum fórum við út á sjó um morguninn og svo á ströndina seinnipartinn. Um kvöldið fórum við niður á strönd til að veiða og náðum 9 fiskum á ótrúlega nettri græju. Ótrúlega gaman að leika sér í sjónum sem að var bæði hreinn og hlýr. Á laugardeginum fórum við í gönguferð og aftur á ströndina og þá dýfði Gulli sér útí sjó og svo seinnipartinn fórum við á seglbretti á hjólum, en það var ekki alveg nógu mikill vindur fyrir alla. Áfram héldu Bjarni og Jackie að dekra við okkur og elduðu góðan mat og létu vel að okkur.

Seglbretti á hljólum


Boogie board á laugardegi

Veiðiferð á föstudagskvöldi, aflinn

Veiðiferð á föstudagskvöldi