Við fórum til Dubai 20. - 22. október, skoðuðum gamla bæinn, sumir fóru á skíði og allir í sund.
Hæðsta bygging í heimi.
Systur í Dubai.
Á meðan Harpa, Hannes og Guðni fóru á skíði í Mall Of The Emirates fóru Þórður Jón og Smári upp eina hæð og léku sér í kastalanum. Þeir máttu ekki fara á skíði því þeir voru ekki orðnir þriggja ára og það er allt of kalt fyrir yngri en þriggja ára í Ski Dubai (-3°C).
Þórður Jón og Smári að koma niður rennibrautina.
v
Og aðra.
Komdu Smári, þessa leið.
Smá sýnishorn.
Um kvöldið borðuðum við á mjög svo góðum indverskum veitingastað þar sem að var lifandi tónlist og strákarnir voru mjög svo áhugasamir, fylgdust grannt með og klöppuðu á viðeigandi stöðum.
Síðasta daginn í Dubai fórum við í Atlantis vatnsgarðinn og það var sko ekki leiðinlegt.
Má ég fá dudduna mína.
Smári að kúra sig hjá mömmu sinni. Þórður Jón komin í kútinn en vildi ekki fara lengra.
Hannes og Guðni að sprauta í kastalanum.
Kastalinn með rennibrautum og allskonar vatnsdóti.
Það þarf að leggja sig eftir svona erfiðan dag.
Það gátu samt ekki allir sofnað. Þannig að þá var bara að raða í sig poppi.