Vinnufélagi minn hann Nader bauðst til að kynna okkur fyrir local mat, hann fékk kokkinn sinn til að elda fyrir okkur og sendi svo bílstjórann til okkar með stóran bakka af mat. Undir brauðpönnukökunum leyndist mjólkurlamb og meðlæti. Þetta smakkaðist mjög vel og var bara byrjunin á góðu kvöldi. Egill og fjölskylda nutu með okkur veitinganna.
Harpa, Hannes, Guðni og Smári komu til okkar í október og þá var margt brallað. Guðni. ´ Þórður Jón og Guðni á flugvélinni í sundi. Þórður Jón og Smári mjög uppteknir við að borða morgunmat.
Randí og fjölskylda komu og heimsóttu okkur frá Noregi. Randí, Elisabet og Þórður Jón á ströndinni. Svo gaman í heimsókn hjá okkur, allir í tölvunum. Sölvi, Elísabet, Þórður Jón, Gulli og Patrik.
Gulli og Þórður Jón fluttu út þann 10. september og amman kom með þeim, þeim til halds og trausts. Daginn eftir fórum við aðeins að skoða í kringum okkur og fundum án erfiðleika bæði sand og sjó. Þórður Jón var ekki lengi að kasta sér út í heitan sjóinn. Lífið er ljúft.
Haldið upp á afmælið heima hjá ömmu, Harpa frænka bakaði Spiderman kökuna. Fullt af pökkum frá fjölskyldunni. Veisluborðið var ekki af verri endanum, mamman fékk svo að fylgjast með öllu í gegnum skype, tölvan sat á veisluborðinu.
Við fjölskyldan gerðumst meðlimir í Hiltonia strandklúbbnum, þar þurftum við ekkert að bíða eftir inngöngu en ársjaldið þar er töluvert dýrara en í Breska Klúbbnum. Við eyddum einum morgni þar með bros á vör.
Þórður Jón í busllauginni. Gulli og Þórður Jón í busllauginni. Gulli go Þórður Jón í stóru rennibrautinni.
Við skelltum okkur í eyðimerkursafarí 11. ágúst, jeppaleikur í sandinum, grill og setið á cameldýri. Þrælskemmtilegt og get mælt með þessu fyrir þá túrista sem koma að heimsækja okkur.
Setið og spjallað lengst úti í eyðimörkinni. Gulli og Erna á Camel dýri. Camel dýrin borða þurrkað gras, ekki vandamál að þurrka það hér.