sunnudagur, ágúst 19, 2007

28. júlí

Valur og Tania giftu sig með stæl í Haukadal og héldu svaka flotta veislu á Hótel Geysi.

Strákarnir voru flottir

Valli bakaði tertuna sem að var alveg svakalega góð og flott.

mánudagur, júlí 09, 2007

07.07.07

Helgi og Anna giftu sig í Garðakirkju síðastliðinn laugardag. Athöfnin var yndisleg og veislan frábær, fallegur dagur í alla staði.

Gulli var svarmaður og stóð sig með prýði.


Gabríel Ingi var hringaberi og var algjört krútt.


Kakan var algjört lostæti, eru þau ekki sæt?

Tania gæs

Tania var gæsuð föstudaginn 6. júlí, hún var sótt í vinnuna og átti sko engan veginn von á okkur.
Dagurinn heppnaðist vel og allir voru kátir.

Þarna er hún á Lækjartorgi að syngja fyrir vegfarendur, þess má geta að hún sló í gegn.

Bakkafjörður

Það var fjölskyldumót á Bakkafirði helgina 29. júní - 1. júlí, við settum niður stein á leiði ömmu og afa í svakalega góðu veðri sem hélst alla helgina.

Við byrjuðum reyndar ferðina á fimmtudeginum 28. júní og gistum á bændagistingu rétt hjá Höfn í Hornafirði. Sveitahundurinn vildi endilega koma með okkur og fór ekki út úr bílnum fyrr en bóndinn kom og dró hann út.


Gulli og strákarnir út á landsenda.


Gulli að veiða, þessum var sleppt.


Móðursystur Ernu sem stóðu á bakvið öll herleg heitin, skipulagningu og mat ofan í her manns.



Gulli fór svo suður á sunnudeginum með hundana en Erna varð eftir í afslöppun. Hún fór svo inn á Akureyri með Járnbrá og Telmu Líf á þriðjudeginum með viðkomu í Jarðböðunum á Mývatni. Og alla leið suður á miðvikudeginum á bílnum hennar Rúnu frænku og með Kristófer Óla í aftursætinu.

23. júní 2007

Hilda Sýndi Móra fyrir okkur á hundasýningu HRFÍ, hann stóð sig með prýði og lenti í öðru sæti (af þrem). Nanuq fékk frí þar sem hann skar sig milli tánna í Þjórsárdal svo að sauma þurfti.

Helgin 14. - 17. júní 2007

Við fórum ásamt öðru góðu fólki í útilegu í Þjórsárdal, 4 fellihýsi, 3 tjöld, 16 fullorðnir, 7 börn og 3 hundar.

Skoðuðum Stöng á föstudeginum.

Og Háafoss á laugardeginum.

föstudagur, júní 08, 2007

3D sónar í morgun

Við fórum í 3D sónar í morgun og tókum bæði ömmuna og afann með okkur. Magnað að sjá litla Gulla svona áður en hann kemur í heiminn. Hann bræddi okkur öll.

miðvikudagur, júní 06, 2007

Kaupmannahöfn 1. - 4. júní 2007

Við hjónin skruppum til Kaupmannahafnar um síðustu helgi ásamt mömmu, keyptum okkur barnavagn, burðarpoka og nokkra fatalarfa, hittum Huld og fjölskyldu, röltum strikið í blíðunni og nutum þess að vera til.





























Myndir frá Vormóti

Að tjalda í rokinu á föstudeginum.














Móri og Nanuq í einni flækju.















Harpa kom þegar hún gat.











Fjölskyldubúðir og Arnarfell í baksýn,

við vorum rétt rúmlega 70 þetta árið.

Erna og Erla Salóme að dansa á tónleikunum á sunnudagskvöldinu.

þriðjudagur, maí 29, 2007

Vormót 2007

Við stórfjölskyldan fórum á hið árlega Vormót Hraunbúa í Krísuvík núna um Hvítasunnuhelgina.
Veðrið lék við okkur að mestu leyti, þó að kalt hafi verið á næturnar og rok á föstudegi þá rigndi ekki neitt (eða svotil, bara smá demba síðustu nóttina).
Nokkur aukabörn fylgdu með okkur öllum til gleði, Jón Bjarni, Erla Salóme, Fjóla Hreindís, Stefanía, Gutti, Helga Rós, Bryndís Sunna og Sigrún Maggý.
Svo voru þarna líka Gulla og hennar strákar, Guðrún og hennar fólk, Sindri og Rakel í einhvern tíma og margir, margir fleiri, eða rúmlega 70 manns í fjölskyldubúðum.
Harpa stoppaði eins lengi og hún gat á laugardegi og sunnudegi en gat ekki gist því Guðni lá heima veikur alla helgina og eins gott að hann vissi ekki af hverju hann var að missa.
Myndavélin var vel geymd í hanskahólfi bílsins og því eru engar myndir að þessu sinni.
Allir, hundar og menn, eru dauðuppgefnir eftir langa og góða helgi og okkur er strax farið að hlakka til næstu útilegu eftir rúmar tvær vikur.

miðvikudagur, apríl 18, 2007

Nýjar dýnur


Við fjárfestum í nýjum dýnum fyrir prinsana og eru þeir hæstánægðir með val húsbóndanna.


Páskar





Við eyddum páskunum í sumarbústaðnum hennar ömmu í Grímsnesi ásamt Val, Taniu, Kaju Maríu og Alex Fróða og auðvitað Móra og Nanuq sem að finnst ekki leiðinlegt í sveitinni.

Drengur


Við eigum sem sagt von á dreng þann 23. ágúst,
við kíktum í umslagið sem við fengum með okkur heim.

miðvikudagur, apríl 04, 2007

Sónar í morgun


20 vikur og við erum við hálfnuð, er þetta stelpa eða strákur???

miðvikudagur, mars 28, 2007

Skugginn er bestur


Það er orðið mjög vinsælt að vera út á svölum og fylgjast með mannlífinu en sólin á það til að vera aðeins of heit og þá er gott að kúra í skuggnaum.