Við fórum í Galtarlækjarskóg ásamt fleiru góðu fólki. Tjölduðum í yndislegum lundi í góðu veðri.
Valli spilaði á gítar á föstudagskvöldinu og við reyndum að syngja með. Á laugardeginum fór helmingurinn í nokkuð langa jeppaferð, við fórum Fallabak nyrðri með stoppi í Landmannalaugum og Ófærufossi og svo Fjallabak syðri til baka. Frábær rúntur.
Spiluðum um kvöldið inni í fortjaldinu hans Vals á meðan rigndi úti.
Allt var svo orðið þurrt á sunnudeginum þegar við pökkuðum niður og fórum heim.
Þeir sem voru í ferðinni vour:
Erna, Gulli, Valur, Tania, Kaja María, Alex Fróði, Valli, Herdís, Danni, Kristín, Victoría Jenný, Gulla, Heikir Örn og Sölvi Mar.
föstudagur, ágúst 18, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Takk fyrir helgina.
Kv Kristín
Takk sömuleiðis, ég vona að við förum í margar útilegur næsta sumar, og allar rigningarlausar.
Erna Mjöll
Skrifa ummæli