fimmtudagur, júlí 02, 2009

Vaktasyrpa númer tvö búin.

Þá er önnur vaktasyrpan búin og komin júlí, ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Ég fór í próf síðasta sunnudag upp úr ICAO doc. 4444 og gekk vel, næsta próf er 8. júlí upp úr LVP og það er mér skilst frekar flókið. Vinnan gengur vel og ég er orðin nokkuð örugg á grundinni og turnstaðan er ekki svo flókin. Ég er búin með 10 þjálfunarvaktir af 25 þannig að þetta er allt í rétta átt.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Erna, gott að heyra að allt gengur vel. Hér biðja allir að heilsa þér, Sindri og Jón Bjarni eru á Vagnsstöðum í góðu yfirlæti :)

kv.Rakel

Nafnlaus sagði...

Flott að heyra, góða skemmtun í vaktafríinu !!/Egill