miðvikudagur, júní 10, 2009

Abu Dhabi

Þá er ég flutt til Abu Dhabi.
Ég lagði af stað á laugardeginum 6. júní og var komin í íbúðina mína aðfaranótt sunnudagsins 7. júní.
Íbúðin er stór og hefur 3 svefnherbergi og er á 17. hæð.
Sunnudaginn var ég mest á skrifstofunni að kynna mér málin og skrifa undir pappíra.
Mánudagurinn fór mest allur í að hitta lækna, út af heilbrigðisskirteini og svo þarf maður heilsuvottorð til að fá dvalarleyfi.
Allan þriðjudaginn var ég á flugvellinum á kynningu og skólabekk.
Allt lítur stórvel út, veðrið heitt og gott, vinnufélagar vinalegir, skemmtilegir og allir að vilja gerðir til að aðstoða mig í einu og öllu.
Hlutirnir gerast ekkert allt of hratt hér og á ég ekki von á að fá net heim til mín fyrr en undir lok mánaðarins. Þar til netið er komið í hús verða líklega stopular færslur.

Engin ummæli: