þriðjudagur, júní 23, 2009

Ertu ekki að grínast?

Hvað haldið þið, það byrjaði að leka heima hjá mér í dag. Loksins flutt úr rigningarlandinu og búið að laga þakið á Smyrlahrauninu þá þarf ég að hafa áhyggjur og loftkælingunni og að hún geti tekið upp á því að leka. Er þetta ekki bara fyndið?
En þeir koma víst ekki fyrr en í fyrramálið að gera við, ég var svo óheppin að uppgötva þetta ekki fyrr en eftir hádegi.
Loftið á baðinu á herbergisganginum.

Og aftur áður en húsvörðurinn kom og kíktí á lekann.

Og inni í vinnukonuherberginu, gott að þar býr enginn.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er hægt að gera eitthvað annað en skella upp úr !!! María

Nafnlaus sagði...

Nei eiginlega ekki, bwahahaha.
Erna Mjöll

Nafnlaus sagði...

ég held að veðurguðirnir séu að gefa þér langt nef.

Harpa

Nafnlaus sagði...

Ha ha ha ha ha Erna - þú þarft að núllstilla þegar þú byrjar á einhverju nýju he he he he ..... viltu að ég sendi þér tusku :)

Nafnlaus sagði...

Rakel

Nafnlaus sagði...

Vona að það verði búið að laga lekann þegar vinnukonan kemur;) Kv. Gulla