sunnudagur, júní 14, 2009

Heitt

Það er búið að vera mjög heitt hérna, en þar sem að ég er ekkert mikið útivið þá er þetta í lagi. Allar byggingar vel loftkældar og stundum það vel að peysu væri þörf.
Ég er þvílíkt búin að versla síðustu daga, svona að reyna að koma mér fyrir. Systir Caroline (sem er líka að byrja hér) hefur búið hér í tvö ár og er búin að fara með okkur búð úr búð þannig að við erum að verða nokkuð góðar.
Verkefni dagsins í dag er að kaupa myndavél svo að ég geti sett inn myndir hér.

Engin ummæli: