mánudagur, júní 15, 2009

Íbúðin

Jæja, þá er ég loksins búin að kaupa myndavél og mynda alla íbúðina hátt og lágt, ég læt fylgja með teikningu af íbúðinni, hún er samt ekki alveg rétt en nógu rétt til að átta sig á hlutföllunum.
Ég labbaði í gær í Abu Dhabi Mall og það tók mig 20 mínúntur.
Fyrsta vaktin mín er á morgun og þá fæ ég bara að fylgjast með til að átta mig á hlutunum, fæ að taka í á miðvikudaginn og hlakka þvílíkt til.

Svalir út úr hjónaherberginu.

Hjónaherbergið.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Miðað við Kosovo lítur þetta út eins og HILTON hótel !!/Egill Már

Nafnlaus sagði...

4 klósett!! Er gert ráð fyrir að þú sért með niðurgang ALLTAF. Mesta vesenið kannski að ákveða á hvaða klósetti er best að hefja úrgangslosun! Annars lítur þetta mjög vel út og það er gaman að sjá að þú ert að spjara þig. Ég átti svo sem ekki von á öðru. Svo er bara að sjá hvort þú verðir einnig fyrst kvenna til að fá mótorhjólaréttindi (það sýnist mér ekki vera í boði ennþá) þ.e.a.s. ef Gulli samþykkir það :)
KKKK (Kær kveðja, KK)